Kæru vinir mínir, loksins fáiði að heira frá mér, ég hef átt mjög erfitt síðasta eitt og hálft ár, en ég hef aldrey hætt mínum fyrirbænum.
Í ágúst 2005 var ég greind aftur með krabbamein í vélinda og var send í tvenns konar lyfjameðferð og 20 geislameðferðir. Mér var engin von gefin um framtíð. Þessi meðferð byrjaði í september og endaði í endaðan desember. Ég var á morfíni, sonde-mat, léttist niður í 40 kíló, var með með bleyju og allt þrek búið, en í janúar 2006 er ég greind krabbalaus og er enn krabbalaus núna í nóvenber 2006. Þessu þakka ég fyrir, þann styrk sem guð gaf mér og hjálpaði mér á meðan að meðferðinni stóð. Það sem ég gerði á meðan ég var í meðferð var að í hvert skipti sem ég fór í geislameðferð fór ég í slökun, andaði inn þrisvar, trú von og kærleikur og í hvert einasta skipti sem ég var í geislun sá ég Jesus Krist standa við hliðina á mér og halda í hendina á mér. Og þegar ég fór í lyfjameðferð gerði ég það sama, fór í slökun og hugsaði að lyfið sem þeir dældu inn í mig væri gult ljós sem fór í gegnum allan líkama minn og læknaði mig. Á hverju kvöldi lagði ég hendur mínar á neðstu orkustöð líkamanns, við lífbeinið, og fór í slökun og sá gula ljósið fara inn um þessa orkustöð og fara í gegnum öll mín líffæri og allan líkaman og heila mig. Ég kalla þetta, að kærleikur guðs hafi læknað mig, og ef þetta getur hjálpað einhverjum þá gleður það mig mikið.
Guð gaf mér einnig lengri líftíma til að vera saman með börnum mínum og stiðja þau. Börnin mín hafa alldrey þurft eins mikið á mér að halda eins síðastliðið ár og hefur sá tími skift mig mikklu máli, því nú standa þeir sterkari ef þeir koma til með að missa mig. Þetta á ég allt guði að þakka.
Jæja kæru vinir mínir nú þarf ég að biðja ykkur um að stiðja mig, ég hef aldrei tekið gjald fyrir mitt starf en ég þarf að biðja ykkur um að senda frjálst framlag ef þið getið, fyrir fyrirbænir því ég á í miklum fjárhagsörðuleikum að stríða vegna veikinda minna og á erfitt með að halda heimasíðunni úti. þið getið lagt inná glitnir. Bankareikning 5069 kennitala. 020853-5069 eða danske bank reg nr. 3440 konto nr. 3440714978.
Ég get líka sagt ykkur heimasíðan hefur fengið gífurlega góðar móttökur og margir fengið bata meina sinna með því að fara inn á heilunarsíðuna og ég vil þakka ykkur fyrir öll fallegu bréfin sem þið hafið sent mér, gangið á guðs vegum, guð er góður.
Kærar kveðjur Guðrún.