






|
 |
Ég heiti Guðrún
Haraldsdóttir
Ég er 48 ára einstæð móðir fimm barna.
Ég er Íslenskur Heilari og
hef starfað við það í 25 ár á Íslandi.
Allir fundarnir mínir og
bænir mínar fyrir fólki hafa verið mjög jákvæðar.
Mér hefur heppnast vel í
starfinu mínu og í mörgum tilfellum hafa verið mörg
kraftaverk.
Innri rödd talar við mig
og ég hef gert allt sem að hún hefur sagt mér að gera, þótt
það hljómi heimskulega. Guð hefur talað við mig fjórum
sinnum í lífi mínu og ég hef aldrei fengið neina þjálfun í
þessu starfi vegna þess að allt kemur að handan.
Ég hef unnið mest með mjög
veiku fólki sem hefur verið með td. Krabbamein, Alnæmi,
Parkinson og marga aðra sjúkdóma.
Heilunin streymir gegnum
allan líkamann minn, yfir í hina persónuna og læknar það sem
hægt er. Virknin byrjar samstundis, sumir kvarta daginn
eftir undan verkjum í líkamanum, en það er bara heilunin að
taka sér stað og margir hafa það miklu betra en áður.
Ég hef allann árangur minn
að þakka nokkrum prestum á Íslandi en sérstaklega einum
þeirra. Hann hefur beðið fyrir mér í 20 ár og án bæna hanns
myndi ég ekki hafa svona sterk tengsl í dag.
Hann Hefur beðið
fyrir mér, þannig að ég hef alltaf getað tengst guðlegum
krafti, og nú í dag get ég gert það sama og hann þ.e tengja
fólk við guðlegan kraft í gegnum internetið.
Ég hef búið í Danmörku í 3 ár, og ég hef ákveðið að byrja að
vinna í gegnum netið, því mér er sagt að þörfin er mikil
fyrir hjálp.
Ég veit að þetta mun virka
vegna þes að Guð hefur aldrei brugðist mér vegna þess að ég
trúi á hann af öllu hjarta mínu og af allri sálu minni. Ég
hef verið mjög góður heilari, en
munið að ér er aðeins tengiliður á milli fólksins og Guðs.
Þegar þú færð tengslin þá
verður þú að muna eftir að biðja fyrir öldruðum og
einhverjum sem þarfnast hjálpar. Með því að segja nöfn
þeirra og heimilisfang, fá þau líka hjálp. Fólk þarf ekki
að trúa á guð og ef guð getur aðstoðað mun hann gera það, en
munið alltaf að þakka guði fyrir. |
|
 |
Um mig |